28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (2114)
61. mál, samvinnufélög
Pjetur Ottesen:
Með leyfi hæstv. forseta vildi jeg aðeins svara því atriði í ræðu hv. 1. þm. Rang. (GunnS), að ómótmælt standi, að fjelagið verði að ábyrgjast skuldir deildanna, verði þær gjaldþrota, og það þá á þann veg, að með þessu okkar deildaskipunarfyrirkomulagi er svo vel og tryggilega um hnútana búið, að til gjaldþrots mundi alls ekki leiða, sje því fylgt, og því kemur heldur ekki til neinnar ábyrgðar fyrir fjelagsheildina. Annars þakka jeg hv. þm. Barð. (HK) fyrir lýsingar þær, er hann hefir gefið á tilhneigingu hv. 1. þm. Rang. (GunnS) til getsaka í garð okkar flutningsmanna þessa frv.