04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (2134)

58. mál, kosningar til Alþingis

Bjarni Jónsson:

Jeg heimta nafnakall um þetta, svo það sjáist svart á hvítu, hvaða þm. vilja ekki leyfa umræður um rjettindi kjósenda í landinu. Annars álít jeg, að forseti eigi að gæta svo velsæmis þingsins, að hann beri ekki upp tillögur, sem eru svo svívirðilegar sem þessi.