07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í C-deild Alþingistíðinda. (2144)
58. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):
Jeg get naumast látið vera að dást að því, hve fús hv. þm. Dala. (BJ) er til samkomulags í þessu máli. Þykir mjer nærri um of, hve mjög hann hefir látið undan síga. Fyrst sló hann af kröfum sínum í frv. og gekk inn á brtt. minni hl., og nú hefir hann slegið enn meir undan í brtt. sínum á þskj. 576 og vill sætta sig við, að þær einar nái fram að ganga. Þetta finst mjer helst til mikið undanhald, en jeg skil þó vel afstöðu hv. þm. Það er andinn í frv., en ekki bókstafurinn, sem er honum áhugamál, og þykir honum því nokkur rjetting málsins betri en engin. Annars er það mjög óþægilegt, er slíkum brtt. er alt í einu varpað inn á þingfund, án þess að nokkur tími hafi gefist til að athuga þær. Get jeg varla á þessum fáu mínútum sjeð, hvort þessar till. hv. þm. Dala. (BJ) eru svo í samræmi við önnur atriði málsins, að þær fái staðist af þeim ástæðum. Skal jeg t. d. benda á, að verði kosningartíminn ákveðinn eins og þar er gert ráð fyrir, þá verður óþarft ákvæðið um 8 umslögin, sem er bygt á því, að kosningin fari fram á 2 dögum. Og vera má, að eitthvað sje meira þessu líkt, sem samræma þyrfti.
Jeg vil svo lýsa yfir því, að við minni hl. menn höldum fast við brtt. okkar. Teljum við litla bót ráðna á málinu, ef þær eru ekki samþyktar, þótt kjörfundurinn sje lengdur. Þar, sem fjölment er, stendur hann hvort sem er fram eftir deginum, og yrði þar engin breyting önnur en sú, að menn gætu öruggari komið seint á fundinn. Úr veðurtöfinni, sem er aðalatriðið, verður ekki bætt með því móti. Sje á annað borð einhvern dag illfært veður, þá helst það venjulega til kvölds. Hitt er miklu líklegra, að 2 illfærir dagar fari ekki saman. Auk þess myndi fáum þykja betra að vera á ferð að kvöldi dags um það leyti árs, einkum ef eitthvað væri að veðri. Hafa slíkar kvöldferðir oft reynst óheillavænar á þessu landi, og því engin ástæða til að gera gyllingar til að fjölga þeim.
Jeg skal svo ekki ræða þetta lengur. Aðeins vil jeg taka það fram, að jeg tel það misskilning hjá hv. frsm. meiri hl. (MG), er hann heldur, að hægt sje að samþykkja brtt. á þskj. 576, en fella frv. Það eru ekki sjálfstæðar till., heldur brtt. við gr. frv., og geta því ekki lifað, ef frv. deyr. Hitt má vera, að hægt sje að finna einhverja leið til að koma þessum ákvæðum fram, þótt frv. sje felt. En vafasamt tel jeg, að það sje unt á annan hátt en koma fram með þau sem sjálfstæðar till.
Eins og sakir standa, held jeg þá fast við málstað minni hl. nefndarinnar. Hitt læt jeg ósagt enn sem komið er, hvernig jeg greiði atkvæði, ef brtt. hans verða feldar.