07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (2148)

58. mál, kosningar til Alþingis

Bjarni Jónsson:

Jeg kýs þá heldur að láta málið sigla sinn sjó eins og það liggur fyrir nú. Nenni jeg ekki að eltast meira við það. Færi vel á því, á sinn hátt, þótt frv. yrði felt og skoðun hv. 3. þm. Reykv. (JÞ) yrði ofan á, að nóg sje, að fólkið í landinu hafi kosningarrjett, þótt það geti ekki notað hann.