28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í C-deild Alþingistíðinda. (2247)

88. mál, menntaskóli Norður og Austurlands

Forseti (BSv):

Jeg vil benda á að það er algert einsdæmi, að mál sjeu tekin út af dagskrá, er umræðum er lokið. Veit jeg ekki til, að nokkur fordæmi sjeu fyrir því, og tel mjög verhugavert að taka þann hátt upp. Mundi þess þá oft við þurfa, svo altítt sem það er, að einhverja þm. vanti á fund við atkvæðagreiðslur.