19.03.1923
Neðri deild: 23. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (2294)
55. mál, útflutningur hrossa
Gunnar Sigurðsson:
Hv. þm. Borgf. (PO) þótti ástæðulítið að undanþiggja apríl og maí, þar sem útflutningur væri leyfður í byrjun júní. Jeg get vel fallist á, að hálfur júni verði tekinn með.
Háttv. þm. Borgf. (PO) sagðist gera þær kröfur sem landbúnaðarfulltrúi, að útflutningur yrði leyfður alt árið, en jeg krefst þess sem landbúnaðarfulltrúi, að eftirlitið verði sem allra best og hross verði ekki flutt út, þegar verst gegnir, nema með sjerstaklega ströngum skilyrðum. Jeg krefst þess markaðsins vegna. — framtíðarmarkaðsins.