01.03.1923
Neðri deild: 9. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (2348)

31. mál, gjaldeyrislántaka

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Jeg sje ekki ástæðu til að bæta neinu við hina glöggu greinargerð hv. flm. (JakM) fyrir frv., einkum þar sem hann tók fram, að stjórninni ætti að vera sett í sjálfsvald, hvort hún notaði þessa heimild, eða ekki. Eins og hv. flm. (JakM) tók fram, getur leikið nokkur vafi á, hvernig muni tekið í þetta frv. En mjer er engin launung á, að jeg sje ekki ástæðu til að slá hendinni á móti slíkri heimild sem þessari, með þeim formála, sem hv. flm. (JakM) hafði.