07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í C-deild Alþingistíðinda. (2379)

78. mál, lærði skólinn

Magnús Pjetursson:

Sem framsögumaður fjvn. vil jeg mótmæla þeim orðum háttv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ), í garð háttv. þm. Dala (BJ), að hann sje jafnan á móti fjárveitingum til verklegra framkvæmda í fjvn. (ÞorstJ: Jeg átti við í hv. deild). Þetta hvorttveggja er ósæmilegar aðdróttanir og hljóta að vera visvítandi ósannindi.