24.03.1923
Efri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í C-deild Alþingistíðinda. (2384)

72. mál, sameign ríkisjóðs og bæjarsjóðs Vestmannaeyja á Vestmannaeyjajörðum

Frsm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg hefi engu við að bæta greinargerð nefndarinnar, en jeg vona að það sjáist á henni, að nefndin hefir ekkert á móti frv. að efni til, og álítur að vera muni sanngjarnt það, sem frv. fer fram á. En í frv. er þó ýmislegt, sem vafamál getur verið um og stjórnin ein mun geta upplýst; hefir nefndin eigi treyst sjer til að kryfja það til mergjar. Hefir hún því lagt til, að málinu verði vísað til hæstv. landsstjórnar til frekari undirbúnings, og gæti hún þá lagt það fyrir næsta Alþingi.