13.03.1923
Neðri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
12. mál, aðflutningsbann á áfengi
Forsætisráðherra (SE):
Háttv. 2. þm. Reykv. (JB) sagði, að einn starfsmaður í vínversluninni mundi hafa það embætti að smakka á vínunum. Jeg þarf víst ekki að taka það fram, að slíkt embætti er ekki til. En þetta sýnir, að margar sögur ganga um vínverslunina, sem menn festa trúnað á. Nú er tækifæri að rannsaka þetta ef þingið vill. Stjórninni væri ánægja, ef þingið gerði tillögur um annað fyrirkomulag á áfengisversluninni, er það teldi betra. En ef þingið gerir ekkert í þessu efni, er óviðkunnanlegt, að menn skuli ljá slíkum sögum vængi í þinginu. Jeg vil skora á þá, sem sögum þessum trúa, að krefjast rannsóknar á fyrirkomulagi verslunarinnar.
Vínsölustaðir eru nú 4 — einn í hverjum kaupstað. Alþingi getur takmarkað þetta, ef því sýnist svo, en jeg hygg, að menn sjái, að stjórnin hefir ekki farið lengra í þessu efni en hún taldi nauðsynlegt. Jeg hefði t. d. kosið, að enginn veitingastaður væri í Reykjavík, en jeg áleit ekki fært að ganga lengra málsins vegna. En þingið getur sett frekari skorður og takmarkanir á sína ábyrgð.