04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í C-deild Alþingistíðinda. (2422)

68. mál, gerðardómur í kaupgjaldsþrætum

Forseti (BSv):

Mjer hafa borist tilmæli frá 6 háttv. þm., svo hljóðandi:

„Undirritaðir þingmenn óska, að umræðum sje hætt.“

Undirritaðir eru: SSt, JAJ, PÞ, BH, StSt, LH.

Nú hefir einn háttv. þm. kvatt sjer hljóðs, og lít jeg svo á, að til þess sje ætlast, að umræðum sje slitið, þegar hann hefir lokið máli sínu.