16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (255)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Jeg skal aðeins leiðrjetta það, sem hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) sagði. Það var einmitt í fyrra skilyrði af Spánverja hendi fyrir bestu kjörum, að samþykt yrði frv. eins og hjer liggur fyrir. Stjórnin lofaði í fyrra að koma með þannig lagað frv., eins og hún hefir gert. Þetta sjest ljóslega í skjölum málsins.