22.02.1923
Neðri deild: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í C-deild Alþingistíðinda. (2565)
22. mál, verðtollur
Magnús Kristjánsson:
Það er óþarft að ræða þetta mál mikið nú, við fyrstu umr. En mjer skilst svo sem sumir líti þannig á þetta frv., að það sje fram komið eingöngu til að afla tekna. En þetta virðist mjer rangur skilningur, og það svo, að jeg gæti ekki fylgt frv., ef ekki ætti að felast í því neitt annað en hækkun tollsins. Jeg lít svo á, að með þessu frv. sje fyrst og fremst um að ræða ráðstöfun til þess að koma í veg fyrir innflutning á óþörfum vörutegundum. Því út frá þessum skilningi einum er frv. rjettlátt, en hækkun tolla hins vegar órjettlát út af fyrir sig. En til þess að unt verði að draga úr innflutninginum á þennan hátt, þarf tollurinn að vera afarhár. Og þetta er það, sem jeg vona, að háttv. væntanleg nefnd athuga vandlega, — og gæti þess að gera frv. svo úr garði, að það fullnægi þeim tilgangi sínum að verka sem innflutningshaft á ónauðsynlegum varningi fyrst og fremst, en ekki einungis sem tekjuauki.