24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 860 í C-deild Alþingistíðinda. (2601)

97. mál, vaxtakjör

Frsm. meiri hl. (Karl Einarsson):

Stutt athugasemd. Jeg tek það aðeins fram, að það, sem jeg hefi sagt um afstöðu Íslandsbanka til frv., var, að jeg mótmælti þeim ummælum hæstv. atvrh. (KIJ), að frv. næði ekki til þess banka. Ef mjer skilst rjett, þá hefir hv. 4. landsk. (JM) sama skilning á þessu atriði og jeg. Meira þarf jeg ekki að bæta við.