08.03.1923
Neðri deild: 15. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 916 í C-deild Alþingistíðinda. (2655)

48. mál, bæjarstjórn á Siglufirði

Hákon Kristófersson:

Jeg vil ekki lengja umr. frekar, en aðeins taka það fram, að jeg hefi ekki sannfærst af ræðum þeirra háttv. flm. (StSt) og hæstv. atvrh. (KIJ) um nauðsyn þess að stytta þetta tímatakmark. Eins og jeg tók fram áðan, þá gæti svo farið, að þótt með rökum mætti verja þetta, þá kæmu fleiri bæjarfjelög á eftir, og tel jeg það síður en svo heppilegt. Það er þetta atriði, sem jeg vænti að háttv. deild athugi vel áður en gengið verður til atkv. um frv.