21.03.1923
Efri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (271)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Það er þrent, sem um er að ræða, þrenskonar undantekningar á bannlögunum, innflutningur víns, veitingar og sala. Og til allra þessara undantekninga varð að taka tillit, til þess að lögunum væri fullnægt þetta var sú niðurstaða, sem stjórnin komst að. Þegar verið var að semja reglugerðina.