30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í C-deild Alþingistíðinda. (2841)

141. mál, skoðun á síld

Bjarni Jónsson:

Mjer dettur í hug, að ef þessi háttv. þingdeild samþykkir þennan sparnað, hvort ekki mætti nota það fje, sem inn kemur, til þess að skipa matsnefnd, er athugi þann sparnað, sem hv. þm. Borgf. (PO) kemur til leiðar með sporðaköstum sínum hjer í deildinni.