10.04.1923
Neðri deild: 38. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1054 í C-deild Alþingistíðinda. (2862)

104. mál, tollalög

Forsætisráðherra (SE):

Jeg ætla ekki að lengja umræður um þetta mál, en vil benda á, að það má ná alveg sama árangri með því að hækka verðið á vínunum sem þessu nemur, og þyrfti því ekki þess vegna áð leggja þessa tollhækkun á þau.

Jeg mun ekki tala meira um þetta mál í háttv. deild, en óska að eiga tal um það við nefndina.