24.04.1923
Neðri deild: 49. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)

98. mál, útsvarsskylda vatnsnotenda

Jón Þorláksson:

Jeg vildi aðeins leiða athygli hv. 1. þm. Reykv. (JakM) að því, að eins og ákvæði frv. eru nú, verða allar rafmagnsstöðvar útsvarsskyldar þar sem þær standa, ef önnur lagaákvæði eru ekki því til hindrunar, og verður því að orða greinina að nýju, ef það á að nást, sem flm. vill.