07.04.1923
Neðri deild: 36. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í C-deild Alþingistíðinda. (2904)
122. mál, fjáraukalög 1923
Flm. (Bjarni Jónsson):
Þegar jeg nú hefi heyrt þessa yfirlýsingu hæstv. stjórnar, get jeg vel lagt niður stjórnina og hætt við að bera fram frv. um fjáraukalög; en úr því það er nú samt hjer fram komið, ætla jeg að gera nokkra grein fyrir því.
Vil jeg fyrst benda þeim hv. þm., sem ekki hafa annað sjeð í þessu máli en 68 till. fjvn., að jeg hefi tekið upp í þetta frv. mitt marga liði, sem samþyktir eru af henni. Svo er um alla liðina í 1. gr. þessa frv., en þó varð mjer þar á sú yfirsjón í þessum stjórnarstörfum mínum, að jeg setti framlag til sjúkraskýlis á Blönduósi alt of lágt. Þar hafði jeg aðeins lítið á nokkurn hluta þeirrar virðingargerðar, sem fylgdi, því jeg sá síðar, að landlæknir hafði áætlað 17 þús. til þessa fyrirtækis. Vil jeg því biðja hv. þm. að byggja ekkert á þessu, þar eð jeg hafði ekki nægilegar upplýsingar við hendina heima hjá mjer, og alls ekki öll þau skjöl, sem þetta mál snertu. Og auk þess hafði jeg ýmsum öðrum störfum að sinna. Vænti jeg því þess, að hv. þm. noti ekki þessa ógætilegu tillögu mína sem mælikvarða á þetta atriði. Geri jeg svo ráð fyrir, að hæstv. stjórn taki flestalla liðina, sem hún veit um, að fjvn. hefir samþykt, upp í fjáraukalög sín fyrir 1923.
Eins er um 2. og 3. gr. þessa frv. Þá liði flesta hefir fjvn. samþykt. Hvað viðvíkur hinum ýmislegu fjárveitingum til ferðakostnaðar ýmsum mönnum, þá álít jeg sjálfsagt, að þetta komi til atkvæðagreiðslu hjer í deildinni; og ef hæstv. stjórn tekur ekki þessa liði alla upp í fjáraukalagafrv. sitt mun jeg bera fram við það brtt. þess efnis; sömuleiðis nokkra liði, sem ekki hefir enn verið rætt um, í fjvn. Mun jeg þá koma þeim þann veg á framfæri við háttv. deild. Hafði jeg og ætlað mjer að taka alt með, er þar kom til umræðu, svo þm. gætu sjálfir ráðið, hvað fram næði að ganga af þessu, en þó gleymdi jeg einum verkfræðing, sem æskt hefir ferðastyrks til London, en það er Krabbe verkfræðingur.
Í 5. gr. eru liðirnir 1.–6. samþyktir af fjvn. 6. gr. frv. inniheldur 2 liði, sem báðir eru samþyktir af nefndinni, og svo er og um alla liðina í 7. gr.
Það mun nú ljóst af þessu, að það er harla lítið, sem jeg hefi ætlað að syndga í þessu máli, er fæstir liðir þessa frv. hvíla á mínu baki einu, er fjvn. hefir samþykt þá. Þar sem nú saga þessa máls sýnist geta verið á enda, er hæstv. stjórn hefir ákveðið að
bera fram fjáraukalagafrv. fyrir árið 1923, skal jeg geta þess, háttv. þm. til skilningsauka, að upp í þetta frv. mitt tók jeg ýmsar till. til fjárveitinga á árinu 1923, sem flæktust fyrir okkur við umræðurnar um fjárlögin fyrir árið í 1924.
Bið jeg svo hæstv. forseta að taka þetta mál út af dagskrá, þar eð jeg vil ekki gefa blóðþyrstum þingmönnum tækifæri til að drepa þetta frv., svo í stjórninni verði ekki á þann hátt meinað að bera fram frv. um fjáraukalög fyrir árið 1923. Þarf jeg einskis forsetaúrskurðar við um þetta frv. mitt, hvort heimilt hafi verið, þar sem allir þm. í hafa ótakmarkaðan rjett til að bera fram frv. fyrir þingið.