10.03.1923
Neðri deild: 17. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

29. mál, ritsíma og talsímakerfi

Forseti:

Jeg vil vekja eftirtekt á því, að það er ekki leyfilegt samkvæmt þingsköpum að tala um annað en frv. það, sem fyrir liggur. Verð jeg að minna hv. þm. á þetta, svo að ekki verði málróf meira en góðu hófi gegnir.