05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (3066)

126. mál, bygging landsspítala

Jónas Jónsson:

Jeg er ekki að finna að því í sjálfu sjer, þó hafðar sjeu 12 manna stofur. Slíkt er líklega óhjákvæmilegt sökum fátæktar landsins. En jeg er að finna að því, að hús, sem á að verða svona dýrt, skuli ekki hafa meiri þægindi að bjóða sjúklingunum.