16.04.1923
Sameinað þing: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í D-deild Alþingistíðinda. (3175)

128. mál, héraðsskóli á suðurlandsundirlendinu

Forsætisráðherra (SE):

Jeg sje, að allir þingmenn Suðurlandsundirlendisins flytja tillögu þessa, og kemur mjer það ekki á óvart. Um mörg ár hefir þetta verið mikið áhugamál þessara sýslna. Þegar jeg var sýslumaður Skaftfellinga, var mikið um málið rætt.

Jeg vil aðeins taka fram, að stjórninni mun ljúft að undirbúa málið.