25.04.1923
Efri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í D-deild Alþingistíðinda. (3320)
146. mál, prestsþjónusta í Mosfellsprestakalli
Jón Magnússon:
Jeg ætlaði mjer ekki að taka til máls við þessa umr. En orð hv. 5. landsk. þm. (JJ) neyða mig til að segja örfá orð. Það er eins og vant er, þar er „öllu snúið öfugt þó, aftur og fram í hundamó“. Jeg sagði ekkert í þá átt, sem þessi hv. þm. (JJ) vildi vera láta. Það, sem jeg hafði á móti till., er þetta: að takmarka heimild í lögum með þingsályktun. Jeg er ekki alveg viss um, að lögin heimili einu sinni að setja prest. Heimild laganna er, að stjórnin á að sjá söfnuðunum fyrir prestsþjónustu. Þetta er reyndar nokkuð vítt, og skal jeg ekki fara út í þá sálma hjer. En jeg fann að því, að breyta þessu með þingsályktun. Hinu hafði jeg vitanlega ekki á móti, að fá þarna prestsþjónustu á sem ódýrastan hátt. Get jeg ímyndað mjer, að hv. 5. landsk. þm. (JJ) rangfæri þetta ekki viljandi, heldur geti hann ekki greint hjer í sundur rjett frá röngu. Það hendir þennan hv. þm. (JJ) nokkuð oft. Annað er það, að jeg sá enga ástæðu til að veita þessa upphæð með þál., þegar bæði fjárlög og fjáraukalög eru á ferðinni í gegnum þingið, en hitt, að ekki mætti spara í þessu efni, hefi jeg aldrei sagt. Hv. þm. (JJ) getur sagt, að þetta sjeu formsatriði, en hann þarf ekki að rangfæra skoðanir manna, jafnvel þó að jeg eigi í hlut.