19.03.1923
Neðri deild: 23. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

21. mál, ríkisskuldabréf

Frsm. (Jakob Möller):

Þó að þetta sje lítið mál og taki ekki langan tíma, þá held jeg megi óska eftir, að það verði tekið af dagskrá, af því að jeg sje að hæstv. fjrh. (MagnJ) er ekki viðstaddur.