22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

21. mál, ríkisskuldabréf

Forseti (BSv):

Það er komin fram rökstudd dagskrá frá háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ), svo hljóðandi:

„Með því að deildinni þykir ekki að svo stöddu þörf á lagasetningu um þetta efni, tekur hún fyrir næsta mál á dagskrá“.

Þessi dagskrártill. er því einnig til umræðu.