20.02.1923
Neðri deild: 3. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

24. mál, fjáraukalög 1922

Fjármálaráðherra (MagnJ):

Eins og kunnugt er, þá lá ekki neitt frv. til fjáraukalaga fyrir þinginu í fyrra. Þessi fjáraukalög fyrir árið 1922 eru fram komin fyrir útgjöld, sem nauðsynleg voru á því ári. Jeg sje ekki neina ástæðu til að fara út í einstaka liði frv., þar sem ítarleg grein er gerð fyrir þeim í athugasemdunum við það. Leyfi jeg mjer að leggja það til, að því verði, að umr. lokinni. vísað til fjárveitinganefndar.