23.04.1923
Efri deild: 46. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

1. mál, fjárlög 1924

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil aðeins benda á, að í dag er 23. apríl, og því komið fram á sumar, er frv. þetta kemur fyrst hingað til þessarar hv. deildar frá hv. Nd. Er því ekki langur tími, sem fjárveitinganefnd þessarar deildar hefir til þess að fjalla um það. En að sjálfsögðu mun hún gera alt, sem í hennar valdi stendur, til þess að fjárlögin þurfi ekki að tefja fyrir þingslitum og að þau verði eins vel úr garði gerð og hægt er.