20.04.1923
Efri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
8. mál, einkaleyfi
Frsm. (Jón Magnússon):
Jeg ætla aðeins að taka það fram, að efnisbreytingar eru hjer engar gerðar, aðeins orðabreytingar og leiðrjettingar á tilvitnunum. Jeg skal viðurkenna, að breytingin á 1. gr. er ekki viðkunnanleg að orðalagi, en örðugt er mjög að orða hana. Ákvæði greinarinnar eru samt fullgreinileg eins og breytingartillagan orðar hana.