08.04.1924
Efri deild: 43. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

126. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Jeg vil fyrir hönd fjhn. óska þess, að frv. þetta fái að ganga umræðulaust til 2. umr., því að nú liggja fyrir nefndinni tvö mál um seðlaútgáfuna, og eru þau komin svo langt, að aðeins er eftir að skrifa nál. Er meining nefndarinnar, að þetta mál komi ekki á dagskrá aftur fyr en búið er að afgreiða þau mál. Hefi jeg talað um þetta við hæstv. fjrh. (JÞ), og er hann samþykkur því fyrir sitt leyti.