24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)
60. mál, ríkisskuldabréf
Jón Kjartansson:
Það var aðeins lítil aths. til hv. nefndar. Jeg vildi undirstrika það, sem hæstv. atvrh. (MG) og hv. 2. þm. Skagf. (JS) sögðu, að það er ekki hægt að rígskorða þetta þannig, að banna algerlega allar aðgerðir. Jeg veit til þess, að það eru brýr í V.-Skaftafellssýslu, sem eru að falli komnar og sem er lífshætta að farið sje yfir. Má þar nefna Skaftárbrúna, en þar er umferð mikil, og þess vegna nauðsynlegt, að við hana sje gert hið bráðasta. Hygg jeg því, að hv. vegamálastjóri hafi átt við þessar brýr og fleiri, sem líkt stendur á og þarna, með ummælum sínum. Þar er svo háttað samgöngum, að það getur orðið mönnum ókleift að ná í lífsnauðsynjar sínar, ef þessara brúa missir við. Yrði það beint fjárhagstjón fyrir ríkissjóð að fresta slíkum framkvæmdum, enda ómögulegt.