22.04.1924
Efri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1670 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)

134. mál, sveitarstjórnarlög

Björn Kristjánsson:

Jeg stakk upp á því um daginn, að allshn. væri falið að íhuga þetta mál. Það er mjög athugavert mál, því í raun og veru er það hreppapólitík, sem liggur á bak við. Þess vegna bauðst jeg til að gefa allshn. upplýsingar um málið og óska þess enn. (Forseti HSteins: Á að skoða þetta sem till. frá hv. þm. um að vísa málinu til nefndar?). Já.