05.03.1924
Neðri deild: 15. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1750 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)
33. mál, friðun á laxi
Þórarinn Jónsson:
Jeg stóð upp einungis til þess að leiðrjetta þann misskilning hjá hv. frsm. minni hl. (MJ), að jeg hafi lagt aðaláhersluna á fordæmið. Það er fjarri því, að svo hafi verið. Jeg hefi lagt aðaláhersluna á friðunaratriðið, sem er því meir eyðilagt, því fleiri sem undanþáguna fá. Eins vil jeg halda því fram, að þótt þessi hv. þm. kvarti mjög undan því, að ekki sje gott að vita, hverju megi trúa í þessu máli og hverju ekki, þá er sú kvörtun ástæðulaus, því hann einn veit, hverju hann á ekki að trúa. Honum er í fyrsta lagi kunnugt um vilja sýslunefndarfundarins í Árnessýslu; í öðru lagi um það, að laxaklak er að byrja þarna eystra, og í þriðja lagi um það, að nú er búið og verið að koma upp miklum lögnum nærri ósum Ölfusár. Þrátt fyrir þetta segir minni hlutinn í nál. sínu, að ekkert hafi nýtt komið fram í málinu frá í fyrra. Ergo hefir háttv. þm. vitað þetta alt á síðasta þingi, en þrátt fyrir það þá barist fyrir framgangi þessa máls. Af þessu sjest, að hann veit vel, hverju hann á ekki að trúa og hvernig hann notar það. Selurinn fleytir hv. þm. ekki út úr þessum þverlögnum af misskilningi og rangfærslum.