25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)

114. mál, lögreglusamþykktir

Frsm. (Jónas Jónsson):

Þetta frv. er komið frá allshn. Vil jeg fyrir hönd hennar mæla með því, að frv. verði samþykt. Sumstaðar á landinu hagar þannig til, að verslunarstaður er partur af hrepp, og undir þeim kringumstæðum getur komið sjer betur að hafa þessi lög.