29.04.1924
Efri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1952 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)
61. mál, bæjargjöld í Reykjavík
Jónas Jónason:
Jeg vildi aðeins leyfa mjer að leiðrjetta villu, sem slæddist inn í athugasemd háttv. 2. þm. G.-K. Hann hjelt því fram, að Jón Ólafsson bæjarfulltrúi væri ekki með þessu frv. Það er að vissu leyti rjett, en þó með dálítið einkennilegu móti. Jóni fanst sem sje frv. ekki ganga nógu langt. Í stað þess að bæjarstjórn gerir ráð fyrir 80 aurum af hverjum 100 kr. í lóðargjaldi, þá gerði hann ráð fyrir 2 krónum. Að því er snertir Pjetur Halldórsson, þá tók jeg það fram í fyrri ræðu minni, að 1 af bæjarfulltrúunum væri frv. andvígur. Ef lagt er svo mikið upp úr einum manni, þá virðist mjer, að leggja verði nokkuð mikið upp úr hinum 15, sem lagt hafa til hvað eftir annað, að slíkt fyrirkomulag kæmist á, og meðal þeirra manna var faðir þess eina fulltrúa, sem nú hefir lagst á móti málinu, og var hann síst ómerkari maður en niðji hans.