25.04.1924
Neðri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2042 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)
29. mál, hæstiréttur
Jakob Möller:
Það er fyrst fyrirspurn til hæstv. forseta (BSv), hvort ekki muni gerlegt að fresta umr. Ein nefnd, að minsta kosti, þarf nauðsynlega að halda fund um ýms mál, og þar á meðal eitt frá hæstv. stjórn, sem ekki mun veita af að farið sje að vinna að, ef það á að komast í gegn á þessu þingi. Og jeg sje ekki ástæðu til að halda mönnum hjer frá nauðsynlegum störfum, til þess eins að sitja undir sparnaðarræðum, eins og þær nú eiga vel við í þessu máli.