22.04.1924
Efri deild: 52. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)

67. mál, búnaðarlánadeild við Landsbanka Íslands

Forseti (HSteins):

Jeg sje enga ástæðu til að bæta manni við í nefndina nú í þinglok aðeins fyrir þetta eina mál. Enda er það ekki venja, þótt nefndarmaður verði veikur um tíma, að setja annan í hans stað.