01.04.1924
Neðri deild: 39. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (174)

1. mál, fjárlög 1925

Forseti (BSv):

Nú er svo komið umræðum, að 22 hv. þm. hafa talað einu sinni hver. Tveir hafa enn kvatt sjer hljóðs, sem ekki hafa tekið fyrr til máls. Ýmsir hafa og í annað sinn kvatt sjer hljóðs og má búast við, að þeir geri það flestir eða allir. Er ekki sýnilegt, að nótt myndi endast til umræðnanna. Umræðum er því frestað og dagskrá þessa fundar lokið.