02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (191)

1. mál, fjárlög 1925

Forseti (BSv):

Það hefir verið talið æskilegt af ýmsum, en hinsvegar eru margir hv. þm. orðnir þreyttir og syfjaðir af hinum löngu umræðum og vilja, að málinu sje frestað. Jeg mun sennilega bera það seinna undir hv. deild, hvort umræðunni skuli frestað, en mun fyrst um sinn halda áfram til miðnættis.