15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í C-deild Alþingistíðinda. (2134)

70. mál, ritsíma og talsímakerfi

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg verð, til þess að fyrirbyggja misskilning út af orðum hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), að geta þess, að það er ekkert, sem bendir til þess, að unt verði að leggja þessa línu á næsta ári. Til þess þyrfti fjárveitingu í fjáraukalögunum næst, en jeg efast stórlega um, að fjárveiting í þessu skyni verði þá tekin upp.