02.05.1924
Efri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í C-deild Alþingistíðinda. (2300)
39. mál, kosningar til Alþingis
Sigurður Eggerz:
Út af tveim kjördögum vil jeg taka það fram, að jeg held, að kosningarimman lengdist með þeirri breytingu. Sje fyrri kjördagur í júlí, þá byrjar kosningarimman svona í apríl eða maí, og svo yrði haldið að sjálfsögðu áfram til hausts. (JJ: Hún dettur niður um sláttinn). Flokkarnir hefðu aldrei frið í sínum beinum, ef sá eldur ætlaði að slokna, sem búið var að kveikja við fyrri kjördaginn. Þó að sje nú að vísu svo mikill hreinleiki í kosningum hjá oss, álít jeg ekki ástæðu til að lengja kosningahríðina. Jeg tala ekki um, ef fyrst yrði sjómannakjördagur. Þá myndi hún lengjast enn meir. Gæti komið fyrir, að þing stæði svo lengi, að liðið væri fram yfir kjördag, einnig getur þingið verið flutt yfir á sumarið. (IHB: Vonandi!) Já, ýmsir óska eftir því. Enda þekki jeg illa vort góða Alþingi, ef það þarf ekki einnig að breyta þessu bráðlega. Það kemur mjer ekki á óvart þó Íhaldið og Framsóknin rjetti hvort öðru hendina um þetta mál, því stefnumunur á milli þessara flokka er sáralítill. Þeir ættu eiginlega að vera einn flokkur með einum hirði. Allur þessi blaðaágreiningur er að mestu leyti látalæti. Báðir sjá jafnstutt frá sjer.