11.04.1924
Neðri deild: 48. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (2333)

54. mál, vinnutími í skrifstofum ríkisins

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vildi aðeins benda hv. þm. Mýra (PÞ) á það, að honum er best að senda umkvartanir um þetta efni til stjórnarráðsins, því að það er algerlega þýðingarlaust að draga þetta inn í umr. hjer. Sjeu þessar kvartanir hans á rökum bygðar, munu þær ábyggilega verða teknar til greina þar, en þingmál getur þetta ekki talist.