28.04.1924
Neðri deild: 57. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í C-deild Alþingistíðinda. (2728)

83. mál, fátækralög

Frsm. meirihl. (Jón Kjartansson):

Aðeins örfá orð út af ræðu hv. frsm. minnihl. (JBald). Aðalatriðið fyrir mjer var, að eitthvað þyrfti að koma í staðinn fyrir þessar breytingar, sem trygði sveitarsjóðina fyrir þeirri stórfeldu útgjaldaaukning, sem ákvæði þessa frv. hljóta að hafa í för með sjer fyrir þá. Þetta veit hv. þm. (JBald) og hlýtur að viðurkenna, og á þetta atriði lagði jeg alla áhersluna.