22.04.1924
Neðri deild: 53. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í C-deild Alþingistíðinda. (2802)

138. mál, happdrætti

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það er nú þegar orðið næsta áliðið fundartímans, og get jeg því vel fallið frá að tala langt mál að þessu sinni, enda teldi jeg að ýmsu leyti heppilegast, að aðalumræðurnar um það yrðu geymdar þar til málið kemur frá nefnd til 2. umr. Læt jeg mjer nægja að leggja til, að því verði, að þessari umr. lokinni, vísað til hv. fjhn.