07.04.1924
Efri deild: 42. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í C-deild Alþingistíðinda. (2814)

122. mál, verðtollur á nokkrum fyrirliggjandi vörubirgðum

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg er ekki viðbúinn að svara spurningu háttv. flm. nú, og allrasíst þar sem það heyrir ekki undir mig, heldur hæstv. atvrh. (MG), en hann er nú bundinn við umr. í Nd. Annars er yfirleitt ekki hægt að krefjast þess, að stjórnin geti svarað svona fyrirspurnum fyrirvaralaust. En jeg held, að hún hafi heimild til að að gera það, sem þurfa þykir í þessu máli, en öðru máli er að gegna, hve hægt verður að framfylgja því. Annars vil jeg fyrir mitt leyti ekki gefa tilefni til þess, að flm. taki frv. aftur.