20.03.1924
Efri deild: 24. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í C-deild Alþingistíðinda. (2836)
99. mál, byggingalög
Atvinnumálaráðherra (KlJ):
Þetta frv. er að vísu borið fram af allshn., en eins og tekið er fram í greinargerðinni, er það borið fram eftir tilmælum mínum. Stendur mjer því næst að gera hjer grein fyrir því.
Eins og hv. þm., sem áttu sæti í deildinni í fyrra, muna, kom þá fram frá hv. 5. landsk. frv. um nokkurskonar yfirbygginganefnd. Þessu frv. var þá vísað til stjórnarinnar, og sendi hún það til húsameistara ríkisins og beiddist álits hans og væntanlegra brtt., er hann kynni að óska að gera á því. Varð húsameistari við þessum óskum stjórnarinnar og sendi stjórninni umsögn sína um þetta mál, en gat þess í greinargerðinni, að hann hefði í smíðum nýtt frv. til byggingalaga fyrir kaupstaði utan Reykjavíkur. Sendi hann stjórninni frv. þetta nú nokkru eftir nýár, og lagði hún það síðan undir álit skiplagsnefndar kaupstaðanna. Hefir hún rætt það á 16 fundum og gert við það smávægilegar breytingar. Hefir nefndin samið greinargerð við það og segir þar í, að hún telji lög þessi mjög nauðsynleg og mæli með því, að frv. verði lagt fyrir þingið.
En þar eð frv. þetta var svo umfangsmikið, taldi jeg ómögulegt að síma það alt til konungs, og taldi heldur ekki fært að bíða með það eins lengi og þurft hefði, ef það hefði verið sent út til konungs til þess að fá samþykki hans til að leggja það fyrir þingið. Snjeri jeg mjer til allshn. og bað hana um að bera málið fram, og varð hún vel við því.
Mig brestur þekkingu í þessu máli til þess að dæma um það, og veit jeg, að svipað er ástatt um flesta hv. þm. En þar sem málið hefir verið svo óvenjulega vel undirbúið og íhugað af skipulagsnefnd, sem er skipuð hinum færustu mönnum á þessu sviði, tel jeg það a. m. k. í öllum aðalatriðum mjög vel fallið til þess að verða að lögum. Jeg tel víst, að með þessu frv. muni nást tilgangur frv. í fyrra á þskj. 316. — Þetta frv. nær ekki til Reykjavíkur, heldur aðeins til annara kaupstaða landsins, sem hafa 500 íbúa eða fleiri. Að vísu eru til lög frá 1905 um byggingarsamþyktir, og samkv. þeim hafa verið gefnar út nokkrar reglugerðir fyrir einstaka kauptún, sem nú falla úr gildi. Gilda því þessi lög fyrir alla kaupstaði og sjávarþorp, sem hafa tiltekinn mannfjölda.
Vil jeg ekki fjölyrða frekar um þetta, en er ekki kunnugt, hvort allshn. hefir athugað frv. nógu vel, eða hvort hún muni óska þess, að því verði aftur vísað til sín.