02.05.1924
Efri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2993)

143. mál, Landspítalamálið

Forsætisráðherra (JM):

Jeg held, að hv. 6. landsk. (IHB) hafi fullkomlega misskilið mig. Jeg var alls ekki á móti því að láta gera nýja teikningu nje að leita samninga við bæjarstjórnina um heita vatnið, heldur þvert á móti. En það var aðeins um 2. lið tillögunnar, sem jeg sagðist engu geta lofað.