02.05.1924
Efri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2994)
143. mál, Landspítalamálið
Sigurður Eggerz:
Ástæðan til þess, að jeg gerði þessa fyrirspurn, er sú, að jeg vil ekki láta ríkissjóð taka á sig þær skuldbindingar, sem hann er ekki fær um að efna.
Þar sem nú búið er að lýsa yfir því, að viðbótin við Kleppsspítala verði ekki bygð á þessu ári, en hinsvegar má líta svo á, ef tillaga þessi verður samþykt, að til þess sje ætlast að til framkvæmda komi með byggingu landsspítala þegar á þessu eða næsta ári, þá tel jeg fyrir mitt leyti varhugavert að samþ. tillöguna fyrirvaralaust. Jeg vil ekki ýta undir stjórnina með að láta byggja hvorttveggja í einu, viðbótina við Klepp og landsspítalann, því að það er fjárhagsleg ofætlun fyrir þjóðina á þessum tímum. Jeg vil því ekki greiða tillögu þessari atkvæði, nema með því fororði, að verkið komi því aðeins til framkvæmda, að fjárhagur ríkissjóðs leyfi.