30.04.1924
Neðri deild: 59. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

1. mál, fjárlög 1925

Bernharð Stefánsson:

Jeg vil aðeins geta þess út af því, sem hv. frsm. sagði viðvíkjandi ábyrgðinni fyrir Siglufjörð, að tillaga mín er eins orðuð eins og ábyrgðarheimild fyrir Akureyri, sem þingið á sínum tíma sá ekkert athugavert við að samþykkja. Getur það því alveg eins samþykt þessa ábyrgðarheimild, því að það er stjórnarinnar að ganga frá tryggingunni.