07.03.1924
Efri deild: 13. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (3158)
64. mál, skrifstofur landsins í Reykjavík
Jón Magnússon:
Í fyrra var samþykt hjer í deildinni lík tillaga þessari, sem nú er hjer á ferðinni. Tillagan var eiginlega sú sama, þótt nú sjeu taldar nánara upp skrifstofur þær, sem flytja megi saman, enda bent á lík rök fyrir þeirri tillögu og þessari. Jeg áleit þá óþarft að samþykkja þá tillögu, því að fjármálaráðherra taldist þá þegar búinn að semja við Landsbankastjórnina um leigu á þeim herbergjum, sem bankinn þyrfti ekki að nota. En flutningur á skrifstofum ríkisins í bankahúsið hefir orðið að bíða vegna þess, að ekki hefir verið hægt að framkvæma hann ennþá; annars gaf stjórnin beint loforð um að framkvæma hana, og það sú stjórn, sem hv. flm. (JJ) styður. Jeg sje því ekki ástæðu til að samþykkja till., en vil hinsvegar vísa henni til stjórnarinnar.
Jeg er að öðru leyti samdóma hv. flm. (JJ) um það, og álít rjett og eðlilegt, að byggingar þær, sem hann hefir bent á, sjeu notaðar í landsins þágu. Jeg skal annars ekki fara frekar út í það, en vil leggja til, að málinu sje vísað til stjórnarinnar.